Mátaðu skóna

Þú getur sótt hjá okkur PDF skrá, prentað út og séð hvaða stærð hentar.

 

Eleven stærðir PDF


See Kai Run stærðir PDF

Skilmálar og reglur Smáskó

 

Smáskór er netverslun þar sem viðskipti fara fram á internetinu.

Ferli

Viðskiptavinur pantar og greiðir fyrir vöruna með millifærslu eða kreditkorti. Þegar Smáskór fær senda staðfestingu á greiðslu er litið svo á að samningur sé á milli Smáskó og viðskiptavinar. Smáskór sendir svo vöruna til viðskiptavinar, honum að kostnaðarlausu.

Viðskiptavinur fær sendan tölvupóst með framgangi pöntunar og getur fylgst með ferlinu í gegnum aðganginn sinn.

Sé greiðsla ekki móttekin innan 24 klst. er pöntun álitin ógild. Smáskór tekur enga ábyrgð á því að greiðslur berist ekki. Sé um tímabundið tilboð/verðlækkun að ræða gildir það verð einungis í tilgreindan tíma.    

Afhending

Þær vörur sem pantaðar eru á Smáskór.is eru sendar með Póstinum. Ef pantanir eru gerðar fyrir kl. 12.00 á virkum dögum er pöntunin sett í póst samdægurs. Pakkinn ætti að berast til viðskiptavinar á 1-3 virkum dögum eftir pöntun. 

Komi fyrir að vörur séu uppseldar, látum við þig vita með tölvupósti. 

 

Sendingarkostnaður

Engin sendingarkostnaður er hjá Smáskóm.

Smáskór senda einungis á næsta pósthús við viðskiptavin, ekki heim að dyrum.

 

Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun 

Hægt er að greiða vörur með greiðslukorti eða millifærslu.

Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt. Allar viðkvæmar upplýsingar, s.s. kreditkortanúmer, sem gefnar eru upp hjá Smáskóm eru dulkóðaðar áður en þær eru sendar til okkar, það er gert til að tryggja að óviðkomandi aðilar geta ekki komist yfir upplýsingarnar. Notast er við greiðslukerfi Valitor.

 

Verð  

Öll verð hjá Smáskóm eru með virðisaukaskatti. Vinsamlega athugið að verð geta breyst án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur. 

 

Vörur 

Verslunin Smáskór leggur sig fram um að sýna allar vörur í réttum litum. Smáskór ábyrgist ekki  litbrigðin eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna tæknilegra annmarka.

 

 

Skilaréttur 

Ánægja viðskiptavina skiptir okkur miklu máli. Uppfylli vara ekki væntingar er hægt að skila henni og fá endurgreitt innan 30 daga. Skila þarf vörunni ónotaðri og óskemmdri í upprunalegum umbúðum ásamt kvittun. Vinsamlega hafið samband um leið og skila þarf vöru á pantanir@smaskor.is. Sendingarkostnaður eingöngu endurgreiddur ef um galla er að ræða.

Útsölu/Tilboðsvöru er einungis hægt að skipta í aðra stærð í sömu vöru.

 

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. 

 

Trúnaður og persónuupplýsingar 

Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Smáskór leggur áherslu á að varðveita upplýsingar á öruggan hátt og mun ekki áframsenda netföng eða annað sem tengist viðskiptavinum.

 

Varnarþing 

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.


HeimHeim

Karfa  

(tóm)

Tilboð

Nýjar vörur

Engar nýjar vörur